Árið 2024 var ÍSKOS framkvæmt í þrettánda sinn. Kosningarannsóknin fól í sér þrjá aðskilda hluta:
- Könnun meðal kjósenda á meðan kosningabaráttu stendur (kosningabaráttuhluti),
- Könnun meðal kjósenda eftir kosningar (kjósendahluti)
- Könnun meðal frambjóðenda þeirra stjórnmálaflokka sem ná kjöri á þing (frambjóðendahluti).
Þema ÍSKOS 2024 var skautun í stjórnmálum og spurningar sem varða þá þætti skipuðu veigamikinn sess í rannsókninni, til viðbótar við kjarnaspurningar um stjórnmálaþátttöku, kosningahegðun og viðhorf.
Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands hafði umsjón með gagnaöflun.
Upplýsingar um sögu Íslensku kosningarannsóknarinnar má nálgast á síðunni „Saga ÍSKOS“.